Fagleg umhirða trjá- og runnagróðurs – Fræðslufundur
Fjallað um viðhald og umhirðu trjá- og runnagróðurs. Á fræðslufundinum verða leiðbeiningar og áherslur umhverfisnefndar um trjágróður í Garðabæ kynntar. Markmiðið er að gera bæinn meira aðlaðandi, m.a. með fallegum og heilbrigðum trjágróðri.
Umræður og kaffiveitingar.
Fræðslufundurinn verður mánudaginn 31. mars í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli og hefst kl. 20:00
Leiðbeinendur eru Baldur Gunnlaugsson garðyrkjutæknir og Magnús Bjarklind garðyrkjutæknir.
Nýlegar athugasemdir