Skógræktarfélag Garðabæjar efnir til Skógardags í Sandahlíð laugardaginn 22. júní kl. 13-15. Í boði verður fjölbreytt dagskrá í faðmi skógarins þar sem allir í fjölskyldunni ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
- Bakað verður yfir eldi (snúrubrauð og sykurpúðar)
- Skógarslagverk
- Tálgun
- Ratleikur
- Skógarganga o.fl.
Dagskráin er liður í Lífi í lundi, samstarfsverkefni ýmissa aðila í skógargeiranum sem gengur út á að bjóða fólki að gera sér glaðan dag í skógum víða um land.
Allir velkomnir!