Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar 2010
Af aðalfundi Hluti stjórnar
Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar 2010 var haldinn mánudaginn 15. mars í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli, auk venjulegra aðalfundastarfa hélt Ólafur Njálsson frá Nátthaga erindið „Aukin fjölbreytni í yndisskógrækt“.
Formaður félagsins Erla Bil flutti skýrslu stjórnar þar sem m.a. kom fram að félagið naut góðs af atvinnuátaki skógræktarfélaganna og Garðabæjar við gerð göngustígar í Smalaholti sumarið 2009.
Félagið réði einnig sl. sumar umsjónarmann til umhirðu á svæðanna og til skipulagningar verkefna átakshópa á skógræktarsvæðunum m.a. við stígagerð.
Barbara gjaldkeri gerði grein fyrir reikningum félagsins yfir árið 2009 sem stendur vel fjárhagslega. Félagsgjald var ákveðið óbreytt eða kr. 1500 fyrri einstakling, kr. 2000 fyrir hjón og 250 kr. fyrir börn yngri en 20 ára.
Skógræktarfélagið ákvað á síðasta ári að ráðast í gerð heimasíðu og var hún opnuð formlega á aðalfundinum. Það gerðu Sigurður Þórðarson vefstjóri síðunnar og Sigurður Hafliðason sem er í vefstjórn. Síðuna hannaði Magnús Guðlaugsson, síðan er sett upp í „Joomla“ kerfi.
Að loknu kaffihléi hélt Ólafur Njálsson Gróðrarstöðinni Nátthaga mjög áhugvert erindi um Aukna fjölbreytni í yndisskógrækt
Kristrún Sigurðardóttir, varaformaður