Árleg Brynjudalsferð
Skógræktarfélagar fóru í árlega ferð sína í Brynjudal í Hvalfirði þann 7. júlí síðastliðinn til að vitja um jólatrjáareit félagsins. Reiturinn er inni í Brynjudal norðanverðum ásamt jólatrjáaræktunarreitum fleiri skógræktarfélaga á suðvesturhorninu.
Erindið var að líta eftir trjánum og gróðursetja nokkrar plöntur í viðbót í reitinn meðal annars blágreni í pottum og fjölpottaplöntur (stafafuru og fjallaþin).
Mikill og góður vöxtur er á trjám í reitnum sem félagar voru mjög ánægðir með að sjá og ekki bar á sviðnum furum né greni sem hefur verið áberandi í vor og sumar.