Skip to main content
All Posts By

a8

Gróðursetningar

Með Fréttir

Gróðursetningar á svæðin hafa gegnum árin verið framkvæmdar af félagsmönnum, af reitahöfum á svæðunum sem eru skólarnir í bænum, félagsamtök og fjölskyldur. Einnig hafa  hópar ungs fólks í Garðabæ tekið þátt í gróðursetningum á svæðin við sumarvinnu, svokallaðir skógræktarhópar.

 

 

1_smalaholt_nem_hofsstsk_sept_1988

Vinnu- og samverukvöld

Með Fréttir

Frá stofnun félagsins hafa vinnu- og samverukvöld verið  starfrækt þ.e.a.s. yfir tvo áratugi. Þetta er angi af sjálfboðaliðastarfi skógræktarfélagsins. Safnast er saman í aðstöðu félagsins nálægt gatnamótum Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar, kl. 20 á þriðjudagskvöldum í maí og júní. Þaðan er farið út á skógræktarsvæðin til gróðursetninga, hlúð að plöntum, eða skoðuð svæðin. Alltaf er sest niður í lokin og spjallað yfir kaffisopa og skráð í dagbókina. Þessar kvöldstundir taka um tvær klst. Félagsmenn geta gengið að þessari starfssemi vísri yfir þessa tvo vormánuði.

Þegar farið er upp í Brynjudal, er lagt af stað úr aðstöðu félagsins kl. 18:00.

 

 

vinnukvold_hofsstadasystur_1995

Haustferðir

Með Fréttir

Haustferðir Skógræktarfélags Garðabæjar hafa sér ekki fyrirmynd frá öðrum systurfélögum. Þetta eru dagsferðir fyrsta eða annan laugardag í september sem hafa mælst mjög vel fyrir og félagsmenn vonast eftir.

Fyrsta ferðin var farin haustið 1998 sem tilbreytni í félagsstarfi á 10 ára afmæli félagsins, skemmst er frá því að segja að haustferðirnar hafa verið fastur liður síðan.

Dagskráin er fjölbreytt, heimsótt skógræktarfélög skoðuð ræktun þeirra og fræðst um þau, vinsælt er að heimsækja gróðrarstöðvar  – fræðast um þær og gera smá innkaup.

Við erum fundvís á ræktun fjölskyldna og einstaklinga og þar leynist fróðleikur sem ræktunarfólk þyrstir í. Þjóðskógarnir hafa verið heimsóttir og starfstöðvar þeirra, einnig er fróðlegt að skoða ræktun hjá skógarbændum.

Skógræktarfélagar koma alltaf sælir og ánægðir heim í Garðabæinn að kvöldi eftir vel heppnaða ferð í góðum félagsskap.

 

 

picture_115

Haustfundir

Með Fréttir

Haustfundir eru jafnframt fræðslufundir. Þeir eru haldnir í október eða nóvember. Undanfarin ár hefur verið boðið uppá ferðasögur með myndum af kynnisferðum, sem Skógræktarfélag Íslands skipuleggur ásamt samstarfsaðilum um kynnisferðir til annarra landa.  Oftast hefur hópur skógræktarfélaga úr Garðabæ sótt þessar ferðir og haldið myndasýningu á sínum myndum.

Haustfundir gefa líka tilefni til að hittast og fjalla um önnur mál sem efst eru á baugi hverju sinni.

Aðalfundir

Með Fréttir

Árlegir aðalfundir félagsins eru haldnir í mars. Boðið er uppá erindi að lokinni dagskrá aðalfundar og kaffihléi. Erindin eru fjölbreytt svo sem um skógrækt, landgræðslu, fugla og önnur  áhugaverð náttúrutengd málefni félagsmanna. Einnig hefur verið boðið upp á ferðasögur í máli og myndum sem er ætíð vinsælt efni.

 

 

adalfundur_2009

Hádegisholt

Með Fréttir

Um 16 ha að stærð, er í landi Setbergsjarðarinnar. Skógræktarfélagið fékk norðurenda holtsins til skógræktar árið 1993. Þar er nær full gróðursett. Áburðargjöf og annarri umhirðu er þar sinnt. Þar rís fallegur ungskógur sem nýtist fyrirhugaðir byggð á Urriðaholti og Setbergi. Ekki hafa verið lagðir stígar þar ennþá, en gott aðgengi er frá Elliðavatnsvegi. Landgræðsluskógaskilti merkir svæðið.

 

hadegisholt_1999_lerki_bil

Leirdalur

Með Fréttir

Um 125 ha að stærð. Leirdalurinn var innan sameiginlegs afréttar Garðabæjar og Álftanes áður innan Álptaneshrepp hins forna, svæðið bar heitið Almenningsskógar hinir fornu. Skógræktarfélög Garðabæjar og Álftanes stóðu saman að gerð Landgræðsluskógasamnings með bæjarfélögunum Garðabæ og Álftanesi ásamt Skógræktarfélagi Íslands, þann 11. júní 1999. Skógræktarskipulag gert 2001 af Jóni Geir Péturssyni hjá Skógræktarfélagi Íslands. Einnig drög að útivistarskipulagi af Þránni Haukssyni hjá Landslagi ehf. Unnið hefur verið að uppgræðslu svæðisins með áburðar- og fræstyrk frá Landgræðslu ríkisins, enda nær gróðursnautt er félögin hófu þar uppgræðslu. Lítilsháttar gróðursetning hefur átt sér þar stað. Illa gekk að losna við sauðfjárbeit á svæðinu, en þeim erfiðleikum er lokið enda allt sauðfé á svæðinu komið til sumarbeitar í beitarhólf sunnan Krísuvíkur. En svæðið er í biðstöðu síðan óbyggðarnefnd Fjármálaráðuneytis tók það fyrir.

 

uppgraedsla_sjaanleg_leirdal_2002

Brynjudalur

Með Fréttir

Skógræktarfélögunum á Suðverstur horni landsins bauðst árið xxxx að fá spildur til ræktunnar jólatrjáa frá Landgræðslusjóði. Skógræktarfélag Garðabæjar tók strax við þessum möguleika að koma upp ræktun sígrænna trjáa með aðaláherslu og möguleika á jólatrjáaskógi. Því holtin ofan Garðabæjar sýndust  ekki sérlega hentug til þeirrar ræktunar. Gróðursetningarferðir í Brynjudalinn hafa verið árlegar í byrjun júní síðan félagið fékk umsjón með reitnum sem er um 1 ha. Þetta hafa verið vel sóttar ferðir félagsmanna sem notið hafa fegurðar og kyrrðar Brynjudalsins. Greniskógurinn hefur staðist væntingar og vex ört í stærð jólatrjáa.

 

 

simon_brynjudal_15juni_2009

Tjarnholt

Með Fréttir

Um 46 ha að stærð, í landi Urriðavatnslands. Félagið fékk umsjón með svæðinu til skógræktar 1994. Vegslóði var ruddur og grjóthreinsaður í samstarfi við landeigendur til aðfanga, en ekki var borið í hann svo hann hefur gróið upp. Gróðursetningar fóru fram að mestu af atvinnuátaki ungs fólks á vegum Garðabæjar. Svæðið er öllum opið en ekki nægilega aðgengilegt almenningi, enda engir stígar á svæðinu. Áburðargjöf á trjáplöntur og önnur umhirða. Aðkoma frá Hlíðarvegi í Heiðmörk, þar er grænt landgræðsluskógaskilti við aðkomu við línuveg inn af Heiðmerkurvegi. Svæðið er samt mjög skemmtilegt til skoðunar í námunda við Selgjá og austan í Syðsta Tjarnholti stendur Markasteinn milli jarðanna Urriðakots og Setbergs. Þaðan er víðsýnt austur yfir Smyrlabúðarhrauns sem er hluti Búrfellshrauns.

 

 

tjarnholt

Lög félagsins

Með Fréttir

SKÓGRÆKTARFÉLAG GARÐABÆJAR

 

Lög félagsins samþykkt á aðalfundi 1999

 

1. grein.

Félagið heitir Skógræktarfélag Garðabæjar. Félagið er aðili að Skógræktarfélagi Íslands sem héraðsskógræktarfélag. Heimili félagsins og varnarþing er í Garðabæ.

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 

 

2. grein.

Markmið félagsins er að vinna að framgangi skógræktar og trjáræktar í Garðabæ og  landgræðslu og stuðla að góðri umgengni á útivistarsvæðum í bænum með því að:

2.1       Efla áhuga bæjarbúa á trjárækt, landgræðslu og gróðurvernd.

2.2       Veita félagsmönnum fræðslu um skógrækt, trjárækt, gróðurvernd og landgræðslu.

2.3       Hvetja einstaklinga og félög til að gróðursetja tré og runna við heimili sín, fyrirtæki og stofnanir og til að stuðla að hverskonar umhverfisbótum.

2.4       Vinna að verndun þeirra skógarreita, sem fyrir eru í bæjarlandinu og koma upp nýjum í samvinnu og samráði við bæjaryfirvöld, landeigendur og annað áhugafólk.

 

 

3. grein.

Félagið hefur  samvinnu við Skógrækt ríkisins um framkvæmdir og öflun fræs og trjáplantna.

Félagið aflar fjár til starfsemi sinnar með félagsgjöldum og með því að leita fjárhagslegs stuðnings frá bæjaryfirvöldum, stofnunum, félögum, fyrirtækjum og einstaklingum.

Félagið aflar sér ræktunarlanda svo sem kostur er. Það úthlutar skikum til félaga, skóla og einstaklinga í Garðabæ til skógræktar í þeim löndum, sem það fær til umráða.

 

 

4. grein.

Félagar geta þeir orðið, sem hafa áhuga á markmiðum félagsins og uppfylla eitt eftirfarandi skilyrða:

4.1       Greiða félagsgjöld, sem aðalfundur ákveður.

4.2       Gerast ævifélagar með því að greiða tvítugfalt félagsgjald í eitt skipti fyrir öll.

4.3       Er félag eða stofnun, sem greiða minnnst fimmfalt félagsgjald.

4.4 Er heiðursfélagi kjörinn á aðalfundi samkvæmt tillögum stjórnar félagsins.

 

 

5. grein.

Stjórn félagsins skipa 7 menn. Aðalfundur kýs formann félagsins og 6 meðstjórnendur og 6 menn í varastjórn að auki. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund, kýs sér varaformann, ritara og féhirði. Kjörtímabil stjórnarmanna er tvö ár og ganga þeir úr stjórn til skiptis 3 meðstjórnendur og 3 varamenn hvort ár. Aðalfundur kýs ennfremur einn skoðunarmann og einn til vara til tveggja ára. Nú er varamaður kjörinn í aðalstjórn á miðju kjörtímabili hans og skal þá kjósa varamann í hans stað á þeim sama fundi til loka kjörtímabilsins.

 

6. grein.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. apríl ár hvert, og boða með fundarboði eða auglýsingu með minnst viku fyrirvara. Aukafundi má halda þess á milli, ef stjórninni þykir ástæða til, eða ef minnst tíu félagar æskja þess.  Stjórnin ákveður fundarstað og stund og boðar fund með dagskrá.

Á dagskrá aðalfundar skal vera:

 

6.1       Skýrsla um starfsemi félagsins undanfarið starfsár.

6.2       Endurskoðaðir reikningar félagsins.

6.3       Ákvörðun á félagsgjaldi.

6.4       Kosning samkvæmt félagslögum.

6.5       Önnur mál.

 

Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

 

 

7. grein.

Stjórnin annast rekstur félagsins og tekur ákvarðanir fyrir þess hönd milli aðalfunda. Hún skipuleggur framkvæmdir og hefur eftirlit með eignum félagsins, semur tillögur um framtíðarstarf þess og sækir um styrki til framkvæmda.

 

 

8. grein.

Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi og þarf tvo þriðju hluta atkvæðisbærra fundarmanna til. Atkvæðisbærir eru þeir, sem skráðir eru í félagaskrá. Verði félagið lagt niður skal stjórn þess afhenda bæjarsjóði Garðabæjar lönd þess og eigur.