Skip to main content
All Posts By

einar

Vinnukvöld í vor

Með Fréttir

Skógræktarfélagið stendur fyrir vinnukvöldum mánudagana  23. og 30. maí kl. 19.

Komið verður saman á neðra planinu í Smalaholti þar sem verkefnum verður úthlutað.

Boðið upp á veitingar að loknu verki.

Vonumst til að sjá sem flesta.

 

Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar 2022

Með Fréttir

 

Skógræktarfélag Garðabæjar heldur aðalfund í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli mánudaginn 28. mars kl. 20:00.

DAGSKRÁ

  • Venjuleg aðalfundarstörf:
  1. Kosning fundarstjóra
  2. Skýrsla stjórnar 2021
  3. Reikningar félagsins 2021
  4. Ákvörðun um félagsgjöld 2022
  5. Stjórnarkjör
  • Önnur mál
  • Kaffiveitingar í boði Skógræktarfélagsins
  • Fræðsluerindi: Eðaltré í görðum og skógi

Sigurður Þórðarson segir frá í máli og myndum

 

Allir hjartanlega velkomnir

Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar

Jólaskógur í Smalaholti

Með Fréttir

Jólaskógur í Smalaholti laugardaginn 11. desember kl. 11:30–15:30.

Fjölskyldan velur sér tré í skóginum og fellir sjálf.

Fallegar furur og greni. Sama verð á öllum jólatrjám óháð stærð, kr. 7.000.

Aðkoma að skóginum í Smalaholti er frá Elliðavatnsvegi norðan við Vífilsstaðavatn.

Skógardagur í Sandahlíð

Með Fréttir

Skógræktarfélag Garðabæjar býður til

skógardags í Sandahlíð

laugardaginn 26. júní kl. 13 – 15

Gerðu þér glaðan dag!

 

  • Grillaðir sykurpúðar
  • Ýmsir útileikir og þrautir
  • Náttúruganga/skógarganga
  • Búa til skýli úr greinum
  • Tálga greinar (gestir þurfa að hafa með sér vasahníf)
  • Leiktæki

Allir hjartanlega velkomnir

Viðburðurinn er hluti af Lífi í lundi, röð viðburða í skógum landsins sem Skógræktarfélag Íslands, Skógræktin og Landssamtök skógareigenda standa að.

Unnið af kappi í skóginum

Með Fréttir

Mánudaginn 7. júní komu nokkrir félagar Skógræktarfélagsins saman til samveru og vinnustundar í útivistarskógunum í Smalaholti og Sandahlíð í Garðabæ.

Hluti hópins bar áburð á eðalplöntur í Smalaholti í nágrenni við trjásýnistíg, sem liggur um svæði þar sem grunnskólabörn gróðursett birki fyrir allt að 30 árum. Skógræktarfélagið ákvað síðan, í framhaldinu þegar skjól hafði myndast á svæðinu, að auka fjölbreytileikann og setja niður ýmsar eðalplöntur sem alla jafna vaxa ekki í Smalaholti enda jarðvegur frekar rýr. Regluleg áburðargjöf hjálpar til við að plönturnar nái að vaxa og dafna á svæðinu.

Hinn hluti hópsins hélt í Sandahlíð þar sem hann vann að grisjun á svæði þar sem víði og greni var plantað. Víðirinn hefur nú lokið hlutverki sínu sem skjól fyrir grenið og því kominn tími til að grisja enda fengu trjáplönturnar aðstoð frá lúpínu sem sá um áburðargjöf á svæðinu.

Að loknu góðu verki var ljúft að setjast niður við nestisborðin á Sandaflöt og fá sér hressingu.

Kristrún SIgurðardóttir, formaður Skógræktarfélags Garðabæjar og Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir taka til hendinni í skóginum.

Ragnhildur Freysteinsdóttir dregur til greinar.

Hópurinn fær sér hressingu á Sandaflöt að loknu góðu verki.

Vinnukvöld 7. júní

Með Fréttir

Skógræktarfélag Garðabæjar stendur fyrir vinnukvöldi mánudaginn 7. júní kl. 19. Komið verður saman í aðstöðu félagsins við Vífilsstaðavatn og haldið þaðan í Smalaholt og Sandahlíð. Í Smalaholti þarf að slá lúpínu frá völdum plöntum við trjásýnistíg og bera á. Í Sandahlíð verður unnið að grisjun og uppkvistun og þarf fólk til að draga greinar frá skógarhöggsmönnunum og koma þeim snyrtilega fyrir.

 

Að lokinni vinnustundinni verður boðið upp á hressingu í skóginum.

 

Allir velkomnir.

Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar 2021

Með Fréttir

Aðalfundur Skógræktarfélags Garðabæjar 2021

fer fram mánudaginn 10. maí kl. 20:00

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

 

DAGSKRÁ

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Kosning fundarstjóra
  • Skýrsla stjórnar 2020
  • Reikningar félagsins 2020
  • Ákvörðun um félagsgjöld 2021

 

Stjórnarkjör:

  • Kosning formanns
  • Kosning þriggja aðalmanna
  • Kosning tveggja varamanna
  • Kosning aðal skoðunarmanns reikninga

Önnur mál

 

Lífgað upp á skóginn – Guðríður Helgadóttir

Gurrý heldur fræðsluerindi þar sem hún fjallar um trjá- og runnategundir sem lífga upp á skóginn.

 

Allir hjartanlega velkomnir

Stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar

 

Metaðsókn í jólaskóg

Með Fréttir

Metaðsókn var í jólaskóg í Smalaholti laugardaginn 12. desember síðastliðinn en þetta er í 16. skipti sem  Skógræktarfélag Garðabæjar býður upp á árlegan jólaskóg. Fjölskyldur nutu útivistar í skóginum í blíðaskaparveðri við val á hinu eina sanna jólatré. Venjan hefur verið að bjóða upp á kakó og piparkökur en því var sleppt að þessu sinni vegna Covid.

Sumir dressuðu sig upp fyrir jólatrjáahöggið.

 

 

 

Jólaskógur á tímum covid-19.

Ýmsum aðferðum var beitt við að koma jólatrjánum út úr skóginum.

Jólaskógur 2020 í Smalaholti

Með Fréttir

Jólaskógur verður í Smalaholti laugardaginn 12. desember kl. 12:00 –16:00.

Aðkoma að svæðinu er frá Elliðavatnsvegi norðan við Vífilsstaðavatn.

 

Fjölskyldan velur sér tré í skóginum og fellir sjálf.

Fallegar furur og greni. Sama verð á öllum jólatrjám óháð stærð, kr. 7.000.-